Vill úkraínska fanga í skiptum fyrir norðurkóreska

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti ræðir við fjölmiðla 8. janúar.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti ræðir við fjölmiðla 8. janúar. AFP/Genya Savilov

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segist reiðubúinn að senda handsamaða hermenn Norður-Kóreu til síns heima í skiptum fyrir að úkraínskir hermenn í haldi Rússa yrðu sendir heim til Úkraínu.

Yfirvöld í Úkraínu tilkynntu í gær að her landsins hefði handtekið tvo særða norðurkóreska hermenn sem hefðu barist gegn úkraínskum hersveitum í Kúrsk-héraði í Rússlandi.

Leyniþjónusta Suður-Kóreu staðfesti í dag við AFP-fréttaveituna að Úkraínumenn hefðu fangað tvo norðurkóreska hermenn þann 9. janúar.

Hafa ekki viðurkennt aðkomu að stríðinu

„Úkraína er reiðubúin til þess að afhenda hermenn Kim Jong Un til hans ef hann getur skipulagt fangaskipti fyrir hermenn okkar sem eru í haldi í Rússlandi,“ skrifaði Selenskí á X.

Hvorki rússnesk né norðurkóresk stjórnvöld hafa viðurkennt að Norður-Kóreumenn hafi verið sendir til að berjast gegn Úkraínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert