Gat ekki bjargað syni sínum

00:00
00:00

Áströlsk móðir hef­ur sagt frá því hvernig hún reyndi án ár­ang­urs að bjarga lífi son­ar síns í gróðureld­un­um sem logað hafa í Los Ang­eles í Kali­forn­íu.

Kon­an, sjón­varpsþáttafram­leiðand­inn Shell­ey Syk­es, sagði í viðtali við ástr­alska fjöl­miðla hvernig hún reyndi í ör­vænt­ingu að koma syni sín­um til bjarg­ar á sama tíma. Hann var 32 ára gam­all og var greind­ur með heila­löm­un.

24 hafa látið lífið

Að minnsta kosti 24 hafa látið lífið í eld­un­um í borg­inni og þúsund­ir bygg­inga hafa brunnið til grunna.

Syk­es greindi frá því á sam­fé­lags­miðlum að hún og son­ur henn­ar, Rory Syk­es, hefðu búið sam­an á 17 ekra land­ar­eign í Mali­bu, sem ligg­ur við strönd­ina í vest­ur­hluta Los Ang­eles-sýslu.

Fjölmörg hús í Malibu hafa brunnið til grunna.
Fjöl­mörg hús í Mali­bu hafa brunnið til grunna. AFP

„Mamma, þú ferð“

Son­ur henn­ar var blind­ur og átti í erfiðleik­um með gang.

„Fæt­ur Ror­ys byrjuðu að bólgna út af hit­an­um og hann átti því erfitt með að ganga. Hann var auk þess slæm­ur í mag­an­um. Hann vildi því ekki fara langt frá baðher­berg­inu,“ sagði Syk­es í sam­tali við Chann­el Nine-frétta­stöðina í Ástr­al­íu í gær.

„Hann sagði því við mig: „Mamma, þú ferð, en ég verð kyrr.““

Syk­es seg­ir að hún hafi ekki getað skilið son sinn ein­an eft­ir.

Slökkvistarf er enn í gangi.
Slökkvistarf er enn í gangi. AFP

Ekk­ert vatn

„Ég hélt kyrru fyr­ir í aðal­bygg­ing­unni með tveim­ur pá­fugl­um inni á baðher­bergi því það var erfitt að anda. Ég sat á gólf­inu með vatn í flösk­um til að halda mér blautri.“

Hún seg­ist hafa séð glóð á þaki ann­ars húss sem son­ur henn­ar bjó í og hún reyndi að slökkva í þeim með slöngu en vatnið hafi verið búið.

Hún brá því á það ráð að aka að næstu slökkvistöð til að óska eft­ir aðstoð. Hún fékk aft­ur á móti þau svör að slökkviliðsmenn­irn­ir gætu ekki held­ur kom­ist í vatn.

Kerfið réði ekki við um­fangið

Eins og greint hef­ur verið frá, þá gerðu marg­ir bruna­han­ar lítið gagn fyrstu dag­ana eft­ir að eld­arn­ir kviknuðu þar sem menn gripu í tómt. Það reitti marga íbúa til reiði.

Yf­ir­völd í borg­inni sögðu í sam­tali við dag­blaðið Los Ang­eles Times að vatns­skort­inn mætti rekja til um­fangs­ins og tím­ans sem fór í slökkvi­starfið. Kerfið hafi ein­fald­lega ekki verið hannað fyr­ir slík­an viðburð.

Eyðileggingin er gríðarleg.
Eyðilegg­ing­in er gríðarleg. AFP

Ekk­ert eft­ir

Þegar Syk­es sneri aft­ur heim sá hún að hús son­ar henn­ar var brunnið til kaldra kola.

„Það var ekk­ert eft­ir,“ sagði hún.

„Ég er al­veg eyðilögð, þetta er allt sam­an óraun­veru­legt. Ég get ekki andað.“

Yf­ir­völd segja að hann hafi dáið af völd­um reyk­eitr­un­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert