Í það minnsta 24 eru látnir og 16 er saknað í gróðureldunum skæðu sem hafa geisað í Los Angeles í Bandaríkjunum í tæpa viku.
Veðurfræðingar segja að í vikunni sé reiknað með vaxandi vindi sem mun torvelda slökkvistarf en um helgina náðist ágætur árangur í að stöðva útbreiðslu eldanna sem brenna nú aðallega á þremur stöðum. Skæðustu eldarnir eru á Palisades og Eaton-svæðunum sem loga í sinn hvorum enda borgarinnar. Sextán hinna látnu fundust á Eaton-brunasvæðinu en átta fundust á Palisades-svæðinu.
Slökkviliðsmenn úr átta ríkjum Bandaríkjanna eru mættir á svæðið sem og slökkviliðsmenn frá Kanada og Mexíkó. Þá hefur Volodimír Selenskí Úkraínuforseti tilkynnt innviðaráðherra sínum að undirbúa að senda úkraínska slökkviliðsmenn til Los Angles-borgar.
<div>Tugir þúsunda manna sem hafa neyðst til að yfigefa heimili sín vegna eldanna munu ekki geta snúið aftur fyrr en í að minnsta kosti eftir fjóra daga að því er embættismenn greindu frá í gær.
</div>Anthony Marrone, slökkviliðsstjóri í Los Angeles-sýslu sagði í gær að spáð sé hvassviðri í þessari viku sem þýði að neyðarástandi vegna eldanna sé langt frá því að vera lokið.