Búa sig undir frekari eyðileggingu

Slökkviliðsmenn við störf í í hæðum Mandeville Canyon.
Slökkviliðsmenn við störf í í hæðum Mandeville Canyon. AFP

Íbúar Los Ang­eles búa sig und­ir frek­ari eyðilegg­ingu þar sem veður­spár gefa til kynna að bæta eigi tölu­vert í vind og þar með gætu gróðureld­arn­ir sem hafa geisað í eina viku magn­ast enn frek­ar.

Bú­ist er við að vind­hraði nái há­marki í dag en þá get­ur hann náð allt að 35 m/​​s. Veður­spár gera ráð fyr­ir því að vind­hraðinn verði mest­ur á háfjöll­um Ventura, sem eru í um 50 kíló­metra akst­urs­fjar­lægð frá stærstu eld­un­um.

Þrír eld­ar halda áfram að loga. Sá stærsti, Palisa­des-eld­ur­inn, hef­ur brennt meira en 23.000 hekt­ara.

Að minnsta kosti 24 hafa lát­ist í eld­un­um og 23 annarra er saknað á Eaton og Palisa­des-eldsvæðunum. Talið er að 12 þúsund hús og bygg­ing­ar hafa orðið eld­un­um að bráð og 92 þúsund manns hafa þurft að yf­ir­gefa heim­ili sín. Ótt­ast er að tala lát­inna muni hækka þegar leit­ar- og björg­un­ar­menn skoða rúst­ir á svæðinu með leit­ar­hund­um.

Í gær­kvöld greindu yf­ir­völd frá því að búið væri að handaka níu manns fyr­ir rán og einn fyr­ir íkveikju.

Þyrlur eru óspart notaðar til að hefta gróðureldana.
Þyrl­ur eru óspart notaðar til að hefta gróðureld­ana. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert