Breytingar bera árangur: París verður hjólaborg

Hjólreiðar hafa aukist svo um munar á götum Parísar.
Hjólreiðar hafa aukist svo um munar á götum Parísar. AFP/Thomas Samson

Reiðhjóla­notk­un í Par­ís hef­ur auk­ist mikið að und­an­förnu, en sam­kvæmt út­tekt franska dag­blaðsins Le Monde tvö­faldaðist notk­un­in í borg­inni frá októ­ber 2022 til októ­ber 2023 og á ein­hverj­um stöðum þre­faldaðist hún. Síðan þá hafa töl­urn­ar haldið áfram að hækka.

Viðleitni borg­ar­inn­ar til að gera göt­ur sín­ar reiðhjóla­vænni virðist því hafa borið ár­ang­ur, en und­an­far­in ár hef­ur stefna borg­ar­stjór­ans miðað að því að gera borg­ina reiðhjóla­vænni.

Sam­fé­lags­leg breyt­ing

Í um­fjöll­un Moment­um Magaz­ine seg­ir að töl­fræðin end­ur­spegli víðtæka sam­fé­lags­lega breyt­ingu í átt að sjálf­bær­um hreyf­an­leika og end­ur­nýj­un borg­ar­inn­ar. Þrátt fyr­ir áskor­an­ir eins og leiðin­legt veður und­an­farið halda hjól­reiðamenn áfram að flykkj­ast út á göt­urn­ar, setja ný aðsókn­ar­met og með því end­ur­móta borg­ar­lands­lagið.

Hjól­reiðar eru orðnar órjúf­an­leg­ur hluti af dag­legu lífi í Par­ís, hvort sem um ræðir ró­leg­ar ferðir meðfram Signu eða dag­leg­ar ferðir um iðandi breiðgöt­ur.

Breyt­ing­arn­ar eru að miklu leyti til­komn­ar vegna breyttra áhersla sem borg­ar­stjór­inn Anne Hi­dal­go setti fram, en und­ir henn­ar stjórn hef­ur borg­in fjár­fest hundruð millj­ón­um evra í að stækka hjóla­kerfi borg­ar­inn­ar og hef­ur hún sett það mark­mið að gera Par­ís að „100 pró­sent hjóla­borg.“

Hjólreiðar eru orðnar órjúfanlegur hluti af daglegu lífi í París.
Hjól­reiðar eru orðnar órjúf­an­leg­ur hluti af dag­legu lífi í Par­ís. Joel Sa­get/​AFP

Fleiri reiðhjól en bíl­ar

Sam­kvæmt  Le Monde, sem dreg­ur upp skýra mynd af hjól­reiðamenn­ingu borg­ar­inn­ar, held­ur notk­un hjól­reiðabrauta áfram að aukast veru­lega. Á álags­tím­um eru reiðhjól fleiri en bíl­ar á ákveðnum göt­um borg­ar­inn­ar.

Seg­ir þar að það sjá­ist greini­lega hversu mikið hjólandi um­ferð hef­ur auk­ist á göt­um borg­ar­inn­ar og að sí­fellt verði þrengra um hjólandi á göt­un­um og öðrum hjólainnviðum. Tel­ur Le Monde að enn vanti tals­vert á að aðlög­un innviða skili því að borg­in verði hjól­reiða para­dís­in sem Hi­dal­go sér fyr­ir sér vegna þessa.

Aðstoðar­borg­ar­stjóri Par­ís­ar, Dav­id Belli­ard, seg­ir þetta ekki koma sér á óvart. Vitað hafi verið að hjól­reiðar í Par­ís hafi farið fram úr því sem hægt væri að kalla tísku­bylgju, held­ur séu þær séu orðnar grund­vall­ar­atriði í sjálfs­mynd borg­ar­inn­ar og íbúa..

Fjár­festa í hjól­reiðainnviðum

Sam­kvæmt Moment­um er ólík­legt að þessi þróun hægi á sér í bráð. Gera megi frek­ar ráð fyr­ir að hún dreifi sér um allt Frakk­land.

Borg­in haldi áfram að fjár­festa í hjól­reiðainnviðum og með útþenslu hjóla­stíga og ný­stár­leg­um hjóla­áætl­un­um líti framtíð hjól­reiða í einni þekkt­ustu borg heims bjart­ar út en nokkru sinni fyrr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert