Kennari stunginn í Svíþjóð

Kennari var stunginn á bílastæði skólans um hádegisbil á miðvikudag …
Kennari var stunginn á bílastæði skólans um hádegisbil á miðvikudag og liggur nú á sjúkrahúsi í stöðugu ástandi. Ljósmynd/Facebook/Förebyggertemaet Väsby

Kennari við Runby-grunnskólann í Väsby í Uppland, norðan sænsku höfuðborgarinnar Stokkhólms, er alvarlega særður eftir hnífstungu óþekkts manns á skólalóðinni um hádegisbil í fyrradag.

„Þetta er rólegheitaskóli svo þessi atburður er okkur mikið áfall,“ segir Axel Homann, nemandi við skólann í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT, en ástand konunnar sem stungin var er nú stöðugt eftir að hún var flutt með þyrlu á sjúkrahús í kjölfar atburðarins. Þetta staðfestir lögreglan á staðnum við SVT.

Stungin og rænd

Hefur sænska dagblaðið Expressen rætt við fórnarlamb árásarinnar og segist því svo frá, að maður með hníf í hendi hafi nálgast einn nemenda skólans á bílastæðinu. Hafi hún þá hlaupið til og skipað nemandanum að koma sér undan. Hafi maðurinn þá stungið hana í kviðinn og því næst haft veski hennar á brott með sér.

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna málsins þótt kennarinn hafi getað lýst árásarmanninum fyrir lögreglu sem rannsakar málið sem tilraun til manndráps.

SVT

Expressen

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert