Fjórir létu lífið í árás Rússa á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, í árás sem utanríkisráðherra Úkraínu kallaði svívirðilega árás með eldflaugum.
Í það minnsta þrír til viðbótar særðust í árásinni. Kænugarður er oft skotmark rússneskra dróna og eldflauga en dauðsföll eru afar sjaldgæf í höfuðborginni, sem er vel vernduð með loftvarnarkerfum og er betur í stakk búin að verjast árásum en annars staðar í landinu.
„Þetta er enn enn sönnum þess að Pútin vill stríð en ekki frið,“ segir Andrí Sibíha, utanríkisráðherra Úkraínu á samfélagsmiðlum.
Rússar skutu á fjórða tug dróna og fjórum eldflaugum á höfuðborgina að sögn flughers Úkraínu en úkraínskum loftvarnarsveitum tókst að skjóta niður tvær eldflaugar og 24 dróna.
Árás Rússa var gerð á sama tíma og Úkraínumenn hafa aukið loftárásir sínar á orku- og hervirki Rússa á undanförnum mánuðum.