Villti á sér heimildir og bað um klámfengnar myndir

Dómurinn yfir Morandini var þyngdur í átján mánuði.
Dómurinn yfir Morandini var þyngdur í átján mánuði. AFP

Franski sjónvarpsmaðurinn Jean-Marc Morandini var í dag dæmdur til átján mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot. Morandini framdi brotin er hann leitaði eftir leikurum í sjónvarpsþátt sinn fyrir áratugi síðan.

Morandini var að framleiða þætti um eitraða klefamenningu og sóttist eftir ungum karlkyns leikurum. 

Hann villti á sér heimildir og sagðist vera kvenkyns leikstjóri. Hann bað leikara um að senda sér klámfengið myndefni af þeim. Hann spurði meðal annars nítján ára leikara hvort hann gæti veitt þeim munnmök.

Dómurinn þyngdur um ár

Morandini var áður dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi en sá dómur var í dag þyngdur af áfrýjunardómstóli.

Lögmaður Morandini segir að skjólstæðingur sinn hafi alltaf borið sig á virðingarverðan máta og hyggst hann áfrýja dómnum til hæstaréttar Frakklands.

Áður verið dæmdur fyrir önnur brot

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að Morandini er dæmdur fyrir kynferðisbrot en hann var árið 2022 dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að senda ungum drengjum klámfengin skilaboð árið á árunum 2013-2016 og fyrir að biðja sextán dreng um að afklæðast og fróa sér í áheyrnarprufum árið 2009.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert