Milos Vucevic, forsætisráðherra Serbíu, sagði af sér í dag. Hart hefur verið sótt að ráðherranum og mánuðum saman hafa staðið yfir fjöldamótmæli þar sem þess var krafist að hann myndi sæta ábyrgð vegna mannskæðs slyss sem varð á lestarstöð í nóvember, þegar þak á lestarstöð gaf sig.
Slysið varð í borginni Novi Sad. Framkvæmdir við endurbætur stóðu yfir þegar þakið féll með þeim afleiðingum að fimmtán létu lífið.
Málið vakti mikinn óhug og reiði en almenningur hefur fengið sig fullsaddan af spillingarmálum og skorti á eftirliti á framkvæmdasvæðum.
Vucevic boðaði til blaðamannafundar í dag þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni. Hann var bæjarstjóri Novi Sad þegar framkvæmdirnar hófust.
„Ég átti langan fund með forseta Serbíu í morgun [...] við ræddum um allt mögulegt og hann sættist á mína röksemdarfærslu,“ bætti hann við.
„Til að flækja málin ekki að óþörfu, svo við kyndum ekki undir frekari spennu í okkar samfélagi, þá hef ég tekið þessa ákvörðun.“
Vucevic var borgarstjóri Novi Sad í tíu ár, eða frá 2012 til 2022, en vinna við endurbætur lestarstöðvarinnar hófust árið 2022.
Hann hafði aðeins þjónað sem forsætisráðherra Serbíu í tæpt ár.
Tugir hafa verið ákærðir í tengslum við slysið í Novi Sad. Þeirra á meðal er Goran Vesic, sem er fyrrverandi samgönguráðherra landsins. Hann sagði af sér örfáum dögum eftir atvikið.
Vucevic greindi frá ákvörðun sinni eftir að þúsundir höfðu staðið fyrir sólarhringsmótmælum þar sem stórum gatnamótum í Belgrad, höfuðborg landsins, var lokað. Þetta var eitt af fjölmörgum mótmælum sem hafa staðið yfir undanfarnar vikur og mánuði vítt og breitt um landið.