Mexíkóflói verður Ameríkuflói á Google Maps

Notendur Google Maps í Mexíkó munu enn sjá flóann sem …
Notendur Google Maps í Mexíkó munu enn sjá flóann sem Mexíkóflóa. Notendur utan Bandaríkjanna og Mexíkó munu sjá bæði nöfnin. AFP

Fyrirtækið Google hefur staðfest að það muni breyta nafni Mexíkóflóa yfir í Ameríkuflóa á miðli sínum Google Maps í Bandaríkjunum.

Mun flóinn enn þá heita Mexíkóflói fyrir notendur miðilsins í Mexíkó og munu notendur utan Bandaríkjanna og Mexíkó sjá bæði nöfnin.

The Guardian greinir frá.

Denali verður Mckinley-fjall

Einnig verður nafnabreyting á miðlinum á hæsta fjalli Norður-Ameríku sem er í Alaska.

Fjallið heitir Denali en notendur Google Maps í Bandaríkjunum munu sjá heitið McKinley-fjall.

Fjallið var kallað McKinley-fjall, eft­ir William McKinley, fyrr­ver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, en heiti þess var formlega breytt í Denali árið 1975 að ósk Alaska.

Þýðir Denali „hátt“ á tungu Kouyu­kon-frum­byggj­anna.

Nafna­breyt­ing­arn­ar eru hluti af fyrstu for­seta­til­skip­un­um Trumps eft­ir að hann …
Nafna­breyt­ing­arn­ar eru hluti af fyrstu for­seta­til­skip­un­um Trumps eft­ir að hann tók aft­ur við forsetaembætti Bandaríkjanna. AFP/Chip Somodevilla

Breytingar gerðar í kjölfar forsetatilskipunar Trumps

Nafnabreytingarnar koma í kjölfar forsetatilskipunar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem tók við embættinu 20. janúar.

Í yfirlýsingu frá Google segir að það samrýmist langvarandi vinnubrögðum þeirra að beita nafnbreytingum þegar þær hafa verið uppfærðar í opinberri ríkisstjórn.

Munu því nafnabreytingarnar birtast þegar Google Maps-miðillinn verður uppfærður eftir að nöfnin verða uppfærð í landfræðilegu upplýsingakerfi bandarísku ríkisstjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert