Þrjár sprengingar urðu í Stokkhólmi og Helsingborg í Svíþjóð í dag. Lögregla hefur handtekið tvo á grundvelli gamalla handtökuskipana en þeir eru jafnframt grunaðir um að tengjast sprengingunum. Engan sakaði.
Ekki er fullljóst hvort sprengingarnar eru tengdar gengjastríði því sem skekið hefur Svíþjóð undanfarið en lögreglu rennir grun í að svo sé. Þrjátíu sprengingar hafa orðið í Svíþjóð það sem af er fyrsta mánuði ársins en 13 sprengingar urðu í janúar í fyrra.
Tvær sprengingar urðu í Suður-Stokkhólmi í morgun, nokkrum klukkustundum eftir að sprenging varð fyrir utan einbýlishús í Helsingborg.
Böndin bárust að þeim handteknu, að sögn Daniels Wikdahl, talsmanns lögreglu, þar sem þeir voru nærri vettvangi annarrar sprengingarinnar og lögregla kunni deili á þeim.
Á föstudag fundaði dómsmálaráðherrann, Gunnar Strommer, með lögreglu eftir að 24 sprengingar höfðu orðið í landinu á fyrstu 24 dögum ársins.
„Þetta ástand getur almennilegt samfélag ekki samþykkt,“ sagði Strommer við blaðið Dagens Nyheter í kjölfar fundarins.
Svíar hafa horft upp á mikla aukningu skotárása og sprenginga. Gerendur eru oft unglingar sem selja þjónustu sína til glæpahópa þar sem þeir eru undir sakfellingaraldri.
Margar sprenginganna eru taldar tengjast fjárkúgunartilraunum gagnvart bæði einstaklingum og fyrirtækjum, lét lögreglan hafa eftir sér á föstudag.
Oft er heilinn á bak við svona aðgerðir staðsettur í öðru landi, er haft eftir Max Akerwall, aðstoðarlögreglustjóra Suður-Stokkhólms.