Caroline Kennedy, dóttir fyrrverandi Bandaríkjaforsetans John F. Kennedy, hefur hvatt öldungadeildarþingmenn til að hafna embættistöku frænda síns, Robert F. Kennedy yngri.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað RFK yngri, son Robert F. Kennedy eldri, í embætti heilbrigðisráðherra en embættisskipunin bíður nú staðfestingar öldungadeildar Bandaríkjaþings.
RFK yngri bauð sig upphaflega fram á móti Trump og Kamölu Harris sem sjálfstæður frambjóðandi í bandarísku forsetakosningunum en hét stuðningi við Trump í ágúst á síðasta ári.
„Ég hef þekkt Bobba allt mitt líf. Við ólumst upp saman. Það kemur mér því ekki á óvart að hann haldi ránfugla sem gæludýr, því hann er sjálfur rándýr,“ sagði Kennedy í harðorðu opnu bréfi.
Kennedy, sem sjálf gegndi eitt sinn embættum sendiherra Bandaríkjanna í Japan og Ástralíu, segir frænda sinn skorta alla viðeigandi reynslu til þess að sinna embættinu og dregur í efa að hann hafi innrætið til þess að gegna stöðunni.
Kvaðst hún sömuleiðis telja sig vita að faðir hennar og faðir RFK yngri hefðu skammast sín fyrir gjörðir hans og skoðanir væru þeir enn á lífi.
Sagði Kennedy viðhorf frænda síns til bólusetninga gera hann vanhæfan til að sinna embætti heilbrigðisráðherra og kallaði hún hann hræsnara fyrir að nýta sér örvæntingu veikra barna til að letja foreldra til að bólusetja börn sín, í ljósi þess að hann hefði bólusett eigin börn.
„Skoðanir hans á bóluefnum eru hættulegar og hann byggir þær vísvitandi á röngum upplýsingum.“
RFK yngri hefur lengi verið efasemdamaður um hvers kyns bóluefni og hefur haldið uppi afsönnuðum hugmyndum um tengingu milli einhverfu og bóluefna. Hefur hann sagt það sína helstu eftirsjá í lífinu að hafa bólusett börnin sín.
Auk umdeildra skoðana er RFK þekktur fyrir skrítnar sögur af sjálfum sér, en hann hefur til að mynda sagst hafa verið með orm í heilanum og að hann hafi sagað höfuðið af bjarndýri.
Dró Kennedy það einnig í efa að frændi hennar hefði siðferði og innræti til þess að sinna embætti heilbrigðisráðherra og sagði hann ítrekað hafa reynt að leiða frændsystkini og systkini sín með sér í fíkniefnaneyslu og stundað dýraníð sér til skemmtunar.
Hún dáist að því að hann hafi nýtt sér þau mörgu tækifæri sem hann fékk til að ná sér á strik en hann hafi engu að síður haldið áfram að svindla sér í gegnum lífið á kostnað annarra.
RFK yngri hefur rætt opinskátt um baráttu sína við fíkniefni, þar á meðal heróín, en hann var sakfelldur fyrir að hafa efnið meðferðis um borð í flugvél árið 1984.