Gul viðvörun á Kanaríeyjum

Enga lægð er að sjá á þessari mynd af Lanzarote.
Enga lægð er að sjá á þessari mynd af Lanzarote. Ljósmynd/Unsplash

Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi á Kanaríeyjum. Varað er við vindhviðum sem gætu náð allt að 21 metra á sekúndu og hættulegum aðstæðum við strendur.

Hiti verður á bilinu 14 til 22 gráður og líkur eru á rigningu.

Þó lægðin Ivo sé yfir Biskajaflóanum þá þeytir hún vindum úr norðri yfir eyjarnar.

Áhrifa lægðarinnar mun einnig gæta á morgun.

Canarias 7 greina frá.

Rofar til upp úr hádegi

Það verður skýjað yfir eyjunum La Palma og Lanzarote í fyrramálið en það rofar til upp úr hádegi.

Við norðvestur- og suðausturhluta eyjaklasans er spáð norðaustanátt.

Á föstudag verður að öllum líkindum enn skýjað, en þó ekki fyrir tilstuðlan Ivo. Er úrkomu þá spáð í norðurhluta eyjaklasans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert