OpenAI treður illsakir við DeepSeek

Innsti koppur í búri OpenAI, Sam Altman, telur DeepSeek hafa …
Innsti koppur í búri OpenAI, Sam Altman, telur DeepSeek hafa nálgast gögn fyrirtækis hans með ólögmætum hætti, en sjálfur sætir hann málsókn New York Times og fleiri fjölmiðla fyrir að hafa seilst í gögn í þeirra ranni að þeim fornspurðum. AFP/Fabrice Coffrini

Bandaríska tæknifyrirtækið OpenAI brigslar kínverska keppinautinum á gervigreindarsviðinu, DeepSeek, nú um að hafa nýtt gervigreindarlíkan þess fyrrnefnda til að þjálfa spjallmenni sitt, R1, sem virðist hafa náð svipuðum árangri fyrir aðeins brot af þeim þróunarkostnaði sem OpenAI hefur varið til sinna gervigreindarafreka.

Frá þessu greinir Bloomberg-fréttaveitan auk þess sem bandarískir fjölmiðlar segja af þúsund milljarða dala niðursveiflu, jafnvirði 140 billjóna íslenskra króna, í hlutabréfaverði tæknifyrirtækja vestanhafs á mánudaginn.

Metfall varð á bréfum bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia, sem framleiðir sérstaka gerð örgjörva fyrir tölvur sem drífa gervigreindarforrit, en Nvidia náði þeim sessi í sumar sem leið að verða verðmætasta fyrirtæki heims þegar það skaut Apple ref fyrir rass á þeim lista. Féllu bréf Nvidia um 600 milljarða dala, jafnvirði 84,1 billjónar króna, og er þar kominn fram rúmur helmingur heildarfalls tæknifyrirtækja á markaði í Bandaríkjunum.

Hækkun á þriðjudag – í kjölfar ummæla Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að árangur Kínverja væri tæknifyrirtækjum Kísildalsins í Kaliforníu þörf áminning – dró þó úr gríðarlegu falli mánudagsins og í morgun greina viðskiptamiðlar frá því að markaðir um allan heim hafi náð stöðugleika.

Grunur leikur á „útdrætti“

Klóra stjórnendur tæknifyrirtækja og fjárfestar þeirra sér nú í höfðinu yfir skyndilegum uppgangi DeepSeek í gervigreindarheiminum og hafa OpenAI og helsti bakhjarl fyrirtækisins, tæknirisinn Microsoft, nú hafið á því rannsókn hvort DeepSeek hafi komist yfir gögn þeirra með ólögmætum hætti í kjölfar þess er stórra gagnaflutninga út úr hugbúnaði á vegum OpenAI varð vart.

Hefur bandaríska viðskiptatímaritið Financial Times greint frá þeim grunsemdum OpenAI, að svokallaður útdráttur hafi átt sér stað, sem upp á ensku kallast „distillation“ og er dregið af útdrætti seyðis, eða virkra efna, við bruggun áfengis, en sú háttsemi í stafrænum iðnaðarnjósnum felst í því að nothæf og unnin kjarnagögn eru dregin út úr gríðarstórum söfnum óunninna hrágagna.

Sem dæmi um þetta – hefur Fox News eftir David Sacks, sérlegum ráðgjafa Donalds Trumps á sviði gervigreindar og rafmyntar – má nefna þegar eitt gervigreindarforrit spyr annað fjölda spurninga til að þjálfa sig í svörum að hætti þess sem spurt er.

Ekki hefur OpenAI þó farið varhluta af gagnrýni í sinn garð fyrir vafasama notkun á hugverkum annarra, en bandaríska dagblaðið New York Times fer fyrir hópi fjölmiðlafyrirtækja sem stefna gervigreindarfyrirtækinu nú fyrir að hafa nýtt gögn þeirra í heimildarleysi.

Bloomberg

The Guardian

Sky News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert