Forseti Kúbu, Miguel Diaz-Canel, hefur lýst áformum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, um að senda innflytjendur í nýja fangageymslu í Guantánamo-flóa á Kúbu, sem grimmdarlegum.
Þetta skrifar Diaz-Canel í færslu á X.
Fangageymslan á að halda allt að 30.000 innflytjendur sem búa nú ólöglega í Bandaríkjunum.
Segir Diaz-Canel að fangageymslan verði staðsett á kúbversku svæði sem sé ólöglega hernumið af bandarískum yfirvöldum.
Þá upplýsir hann að innflytjendunum verði haldið nálægt aðstöðu sem Bandaríkin hefðu notað m.a. fyrir pyntingar.