Aldrei hefur svo rammt kveðið að sprengingum í Svíþjóð sem í gær, þriðjudag, þegar alls sex sprengjur sprungu víða um landið og hefur sænska lögreglan nú haft hendur í hári sprengjugerðarmanns á vegum eins þeirra glæpagengja sem berast á banaspjót í landinu.
Meðal annars var sprengt í höfuðborginni Stokkhólmi og Helsingjaborg við Eyrarsundið og segir Max Åkervall, starfandi lögreglustjóri í suðurumdæmi Stokkhólmslögreglunnar, við ríkisútvarpið SVT að hinn handtekni hafi gegnt burðarhlutverki í sprengjugerð undirheimanna.
Åkervall ræddi við morgunfréttaþáttinn Morgonstudion á SVT í morgun og kom þar inn á atriði sem áður hafa verið fréttaefni og mbl.is meðal annars fjallað ítarlega um – höfuðpaura og gengjastjórnendur sem fjarstýra liði sínu frá útlöndum.
„Ástæðurnar að baki þessu eru að utan marka Svíþjóðar sitja menn sem stjórna atburðarásinni og samhæfa hana með ýmsu móti auk þess sem enginn hörgull er á ungu fólki, einkum drengjum, sem eru fúsir til að taka verkin að sér,“ sagði lögreglustjóri í Morgonstudion.
Nú sé svo komið að tilræðismenn þessir – þeir er koma sprengjunum fyrir á þeim vettvangi sem er skotmarkið – komi frá öðrum landshlutum til að sinna verkefnum sínum og hafi engin tengsl við brotavettvanginn.
„Stór hluti þeirra er á flótta eftir að hafa strokið úr ólíkum úrræðum félagsþjónustunnar, til dæmis HVB-heimilum [„Hem för vård eller boende“ sem eru áfangaheimili fyrir ungmenni á refilstigu] eða LVU-úrræðum [skammstöfunin vísar til heitis sænskra laga um sérstök úrræði fyrir ungmenni, lag med särskilda bestämmelser om vård av unga] og þar fram eftir götunum,“ útskýrði Åkervall í morgunþættinum.
Kvað hann mestu skipta að lögreglu hefði auðnast að hafa hendur í hári margra þeirra unglinga sem fengnir séu til þess hluta verksins að koma sprengju fyrir auk þess sem fengur þætti í að hafa handtekið sprengjugerðarmanninn. „Það eru þeir sem útbúa sprengjurnar og setja þær saman,“ sagði lögreglustjóri.
Eins og mbl.is greindi frá í gær fundaði sænski dómsmálaráðherrann Gunnar Strömmer með lögreglu á föstudaginn í tilefni þess að 24 sprengjur höfðu sprungið í landinu fyrstu 24 daga ársins. Þær eru nú orðnar á fjórða tug innan við viku síðar.
Hefur Strömmer nú kallað saman aðgerðaráð um aðgerðir gegn skipulagðri glæpastarfsemi til neyðarfundar á morgun, fimmtudag.