Uppi er fótur og fit í grænlenska þingmeirihlutanum. Þingmaður hefur kært þingkonu fyrir ærumeiðingar eftir að hún sakaði hann um að stefna þjóðaröryggi landsins í hættu er hann hitti bandaríska löggjafa einn síns liðs.
Á blaðamannafundi sem haldinn var síðasta fimmtudag sagði Múte B. Egede, formaður grænlensku landstjórnarinnar, að öll samskipti milli Grænlands og Bandaríkjanna ættu að fara í gegnum „opinberar boðleiðir“.
Á sama tíma var kollegi hans úr þingmeirihlutanum á vappi um Washington m.a. til að fylgjast með innsetningarathöfn Donalds Trumps, að öðrum þingmönnum óupplýstum.
Sermitsiaq segir heimildir sína herma að ókyrrð sé innan þingmeirihlutans vegna málsins. Fjölmiðillinn greinir einnig frá því að 85% Grænlendinga vilji ekki að landið verði hluti af Bandaríkjunum samkvæmt nýrri könnun.
Kuno Fencker, þingmaður sósíaldemókrataflokksins Siumut („Fram“), hefur vakið athygli undanfarna viku þar sem hann hitti fulltrúardeildarþingmanninn Andy Ogles, sem er dyggur bandamaður Trumps.
Ogles er heilinn á bak við frumvarp sem nefnist á frummálinu „Make Greenland Great Again“ sem myndi gera Bandaríkjaforseta kleift samkvæmt bandarískum lögum að kaupa Grænland.
Fencker sagði við TV2 að hann væri á ferðinni á sínum eigin forsendum. „Rétt eins og margir Danir vita ekki nokkuð um Grænland [...] þá gera Ameríkanarnir það heldur ekki. Þannig að ég vil efla samtalið um landið okkar.“
Hann tók þó fram er hann ræddi við Bandaríkjamennina að Grænland væri ekki til sölu.
Heimsókn Fenckers til Bandaríkjanna hefur mætt sterkum viðbrögðum, jafnvel frá samstarfsmönnum hans í þingmeirihlutanum. Er hann sagður með þessu stefna þjóðaröryggi Grænlands í hættu.
„Ég myndi ganga svo langt að segja þetta þjóðskaðlega starfsemi,“ sagði Aaja Chemnitz í samtali við TV2 en hún er þingmaður úr Inuit Ataqatigiit („Samfélagi fólksins“) en flokkarnir tveir mynda landstjórn Grænlands.
Fencker tók ekki vel í ummæli samstarfskonu sinnar og segist nú við danska ríkisútvarpið hafa kært Chemnitz til lögreglunnar fyrir ærumeiðingar.
Chemnitz svarar fullum hálsi og segist hafa fengið „hótun um að vera kærð fyrir að hafa tjáð mig gagnrýnt um ferðalag annars stjórnmálamanns til Bandaríkjanna“.
„Ég læt ekki undan þvingunum og hótunum,“ skrifar hún á Facebook í gær.