Marianne Faithfull látin

Marianne Faithfull á tónleikum árið 2016.
Marianne Faithfull á tónleikum árið 2016. AFP

Söng- og leikkonan Marianne Faithfull er látin 78 ára að aldri. Hún lést í London í dag í faðmi fjölskyldu sinnar.

Fatihfull fæddist í bænum Hampstead árið 1946. Hún var þekkt fyrir lagið As Tears Go By sem vakti mikla athygli í Bretlandi árið 1964 en hún var einnig þekkt fyrir að hafa farið með hlutverk í kvikmyndinni The Girl On A Motorcycle árið 1968.

Varð heimilislaus

Hún var kærasta Mick Jagger, söngvara The Rolling Stones, á sjöunda áratug síðustu aldar og er talið að smellirnir Wild Horses og You Can't Always Get What You Want hafi að einhverju leyti verið samdir um hana.

Lífið var þó ekki bara dans á rósum. Hún ánetjaðist heróíni á áttunda áratugnum og varð um stund heimilislaus og götum Soho í London.

Hún sneri þó til baka með plötunni Dreamin My Dreams árið 1976 en það var platan Broken English sem kom út árið 1979 sem markaði nýtt upphaf á ferli hennar og var sú plata tilnefnd til Grammy-verðlauna.

Faithfull kom til Íslands í nóvember árið 2004 og hélt tónleika á Broadway. Tónleikarnir fengu fjórar stjörnur í umsögn, sem birtist undir fyrirsögninni „Sérstök og seiðandi“ i Morgunblaðinu. 

Glímdi við mikil veikindi

Á löngum tónlistarferli hennar starfaði hún m.a. með David Bowie, Lou Reed, Damon Albarn, Metallica sem og Pj Harvey og Nick Cave sem bæði hafa sagt Faithfull hafa veitt þeim mikinn innblástur.

Faithfull glímdi við mikil veikindi í lífi sínu og hafði m.a. barist við lotugræðgi, brjóstakrabbamein og lungnaþembu sökum stífra reykinga um áratugaskeið.

Hún greindist með Covid-19 árið 2020 og lá inni á spítala í 22 daga. Ekki var talið að hún myndi lifa veiruna af. Hún jafnaði sig þó og gaf út sína síðustu plötu, She Walks In Beauty, ári seinna.

Hún var þrígift og þrífráskilin og á einn eftirlifandi son.

BBC

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert