Vilja að fangar afpláni erlendis

Kumla-fangelsið í Svíþjóð er hámarksöryggisgæslufangelsi með 721 pláss sem tekið …
Kumla-fangelsið í Svíþjóð er hámarksöryggisgæslufangelsi með 721 pláss sem tekið var í notkun árið 1965. Þar hafa þekktir afbrotamenn goldið skuld sína við samfélagið, Christer Pettersson, sem dæmdur var fyrir dráp Olovs Palme forsætisráðherra árið 1986, en sýknaður við áfrýjun, sat í Kumla. Ljósmynd/Wikipedia.org/Pål-Nils Nilsson

Nefnd á vegum sænsku ríkisstjórnarinnar leggur til að yfirvöld landsins gangi til samninga við önnur Evrópuríki um að leigja afplánunarrými í fangelsum þeirra þar sem sænskir afbrotamenn muni sitja af sér sína refsidóma. Kveður nefndin engin þau ákvæði finnast í sænskri löggjöf sem banni slíka ráðstöfun.

Rými er orðið af skornum skammt í fangelsum Svíþjóðar og ekki reiknað með að úr rætist í bráð þar sem spár löggæsluyfirvalda og réttarvörslukerfisins þarlenda gera nú ráð fyrir fleiri handtökum og í takt við þær fleiri sakfellingum auk þess sem reiknað er með lengri afplánun í ljósi áætlana um að taka fastar á sænska gengjastríðinu og ganga harðar fram í refsingum á þeim vettvangi.

Nefnd sú, er farið hefur yfir stöðuna, var skipuð í desember 2023 og lét Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra þau orð falla á blaðamannafundi í gær að næst væri tímabært að ganga til samninga við stjórnvöld annarra ríkja um leigu á afplánunarrýmum.

Nái einnig til fanga undir lögaldri

Leggur nefndin það til að leigufangelsin verði í ríkjum Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins, að fangar frá sænska réttarvörslukerfinu lúti sænskum lögum við afplánun sína og – eftir því sem mögulegt er – að starfsfólk sænska réttarvörslukerfisins taki sem flestar ákvarðanir í málefnum fanganna og verði sem mest í sambandi við þá þegar nauðsyn ber til slíks.

Þá hefur nefndin ráðfært sig við yfirvöld í Belgíu, Danmörku og Noregi, ríkjum sem þegar hafa brugðið á það ráð að leigja rými í erlendum fangelsum, og fengið að heyra af reynslu þeirra.

Jafnvel er gert ráð fyrir því að afbrotamenn undir lögaldri verði sendir til afplánunar erlendis, þó með tilliti til fjölskylduaðstæðna sem séu veigamikill þáttur þegar meta skal hvort fangi taki út refsingu sína utan heimalandsins.

Að lokum telur nefndarformaðurinn Mattias Wahlstedt að sérstaka áherslu beri að leggja á afplánun erlendis í málum fanga sem bera erlent ríkisfang og hefur verið vísað úr landi í Svíþjóð á grundvelli brota sinna.

SVT

Dagens Juridik

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert