Búið að finna svörtu kassana

Rannsakendur með brot úr farþegavélinni.
Rannsakendur með brot úr farþegavélinni. AFP

Rannsókn er hafin á flugslysinu í Washington sem varð á miðvikudagskvöld þegar farþegaþota og herflugvél rákust saman og hröpuðu í Potomac-ánna. 67 sem voru samtals í vélunum báðum og eru allir taldir af.

Rannsakendur fundu í gær svörtu kassanna tvo úr farþegaflugvélinni en um er að ræða bæði raddupptökutækið og flugganaritann. Flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum segja of snemmt að segja til um orskök flugslyssins en vonast er til að hægt verði að birta bráðabirgðaniðurstöður úr rannsókinni innan 30 daga.

Hljóðupptökur úr flugturninum hafa verið spilaðar opinberlega þar sem flugumferðarstjórar heyrast ítrekað spyrja þyrluflugmennina hvort þeir sjái ekki þotuna. Rétt áður en áreksturinn varð biðja flugumferðarstjórarnir þyrluna um að fljúga yfir aftan farþegavélina.

Í gærkvöld höfðu fundist um 40 lík í Potomac-ánni og stendur leit enn yfir en 60 farþegar voru í þotunni ásamt fjögurra manna áhöfn og þrír bandarískir hermenn voru í þyrlunni.

Á blaðamannafundi í gær sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að Joe Biden, fyrrverandi forseti, hafi grafið undan flugöryggi í landinu og hafi beitt sér fyrir að ráða fólk með fjölbreyttan bakrunn. Með því hafi vanhæfir flugumferðarstjórar verið ráðnir til starfa.

Búið er að finna 40 lík í Potomac-ánni.
Búið er að finna 40 lík í Potomac-ánni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert