Norska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði stöðvað skip, sem er í norskri eigu, að beiðni yfirvalda í Lettlandi. Grunur leikur á að skipið hafi átt þátt í skemmdarverkum sem voru unnin á sæstreng í Eystrasaltinu.
Eigandi skipsins neitar sök.
Skipið nefnist Silver Dania og siglir undir fána Noregs. Það var að sigla á milli Pétursborgar og Múrmansk í Rússlandi þegar norska strandgæslan hafði af því afskipti í gærkvöldi skammt frá Tromsø í Norður-Noregi.
„Grunur leikur á að skipið hafi átt þátt í því að valda alvarlegum skemmdum á ljósleiðara á milli Lettlands og Svíþjóðar í Eystrasaltinu,“ segir norska lögreglan.
Hún tekur fram að lögreglumenn séu nú um borð í skipinu og að rannsókn standi yfir. Lögreglan segir enn fremur að eigandi skipsins og áhöfn þess hafi veitt lögreglu aðstoð.
Þá segir lögreglan að allir um borð í skipinu séu rússneskir ríkisborgarar.
Þann 26. janúar greindu yfirvöld í Svíþjóð og í Lettlandi frá því að ljósleiðarinn, sem er í eigu lettenska ríkisútvarpsins, hafi skemmst. Hann liggur á milli sænsku eyjunnar Gotlands og Ventspils í Lettlandi.
Silver Dania er í eigu norsku útgerðarinnar Silver Sea. Talsmaður hennar segir að skipið hafi ekkert með málið að gera.
„Við vorum á siglingu nærri Gotlandi en við köstuðum ekki út akkerinu,“ segir Tormod Fossmark, forstjóri Silver Sea.
„Við gerðum ekkert af okkur,“ bætti hann við. „Norsk yfirvöld hafa fært okkur til hafnar til að hreinsa okkur af allri sök.“
Fossmark sagði enn fremur að rússneska áhöfnin hefði unnið lengi fyrir útgerðina.
„Þeir gerðu ekkert rangt,“ bætti Fossmark við, sem kvaðst vera hundrað prósent viss í sinni sök.