Par fannst látið í íbúð

Lögreglan í Bergen rannsakar líkfund í íbúð þar í nótt …
Lögreglan í Bergen rannsakar líkfund í íbúð þar í nótt en þar fannst par örent. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson

Lögreglan í Bergen á vesturströnd Noregs rannsakar nú líkfund í íbúð þar í miðbænum í nótt þar sem par fannst látið í kjölfar þess er aðstandandi annars hinna látnu hafði samband við lögreglu og hafði þá ekki heyrt frá ættingja sínum dögum saman.

Fannst fólkið látið í íbúðinni þegar lögregla kom á vettvang og gengur hún auk annars út frá því að um manndráp og sjálfsvíg hafi verið að ræða, en tæknideild lögreglu rannsakar nú vettvanginn.

„Við erum enn skammt á veg komin í rannsókn málsins og lögreglan hefur takmarkaðar upplýsingar,“ segir Arne Lutro upplýsingafulltrúi í fréttatilkynningu.

Engin lifandi manneskja liggur undir grun um að hafa brotið gegn parinu.

NRK

VG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert