Leigja glæpamenn til skemmdarverka

Norska öryggislögreglan PST hefur gefið út sína árlegu skýrslu um …
Norska öryggislögreglan PST hefur gefið út sína árlegu skýrslu um ógnir ársins í landinu og komu skýrslur leyniþjónustunnar og þjóðaröryggisstofnunar út samdægurs. Ljósmynd/Politiforum.no

Ekki er örgrannt um að skemmd­ar­verka­menn á veg­um Rússa muni beina spjót­um sín­um að norsk­um hags­mun­um á ár­inu og séu vopna­send­ing­ar og lífs­nauðsyn­leg­ir innviðir á borð við orku­ver og tölvu­kerfi þar í sér­stakri hættu.

Þetta boðar norska leyniþjón­ust­an í ár­legri skýrslu sinni um þær ógn­ir sem að land­inu steðja þrátt fyr­ir að enn frem­ur komi fram í skýrsl­unni að fram til þessa hafi til­raun­ir til skemmd­ar­verka á þess­um vett­vangi ekki verið gerðar.

Auk leyniþjón­ust­unn­ar gáfu ör­ygg­is­lög­regl­an PST og þjóðarör­ygg­is­stofn­un­in NSM sín­ar mats­skýrsl­ur á sama vett­vangi út í gær.

Árvekni al­menn­ings þörf

„Árið 2024 áttu 40 skemmd­ar­verkaaðgerðir sér stað í Evr­ópu sem ým­ist var af­stýrt eða þær heppnuðust,“ seg­ir Nils Andreas Stensø­nes yf­ir­maður leyniþjón­ust­unn­ar í sam­tali við norska rík­is­út­varpið NRK og bend­ir enn frem­ur á að stuðning­ur Nor­egs við Úkraínu í inn­rás­ar­stríði lands­ins við Rúss­land geri Nor­eg að lík­legu skot­marki skemmd­ar­verka.

Hef­ur rúss­neska sendi­ráðið í Ósló mót­tekið fyr­ir­spurn NRK um málið.

Bea­te Gangås yf­ir­maður PST legg­ur á það þunga áherslu að al­menn­ing­ur sé ár­vök­ull og til­kynni um það sem hann telji grun­sam­lega hátt­semi. „Við höf­um ekki orðið vör við staðfest til­felli [skemmd­ar­verka] í Nor­egi enn sem komið er, en við verðum að vera við öllu búin,“ seg­ir Gangås við NRK.

Ekki hlotið sér­staka þjálf­un

Kveður Stensø­nes leyniþjón­ust­u­stjóri það enn frem­ur áhyggju­efni að þeir sem skemmd­ar­verk­in fremja séu leigðir til þeirr­ar starf­semi. Séu það gjarn­an af­brota­menn sem pantaðir séu til hvers verk­efn­is gegn­um ra­f­ræna sam­skiptamiðla og þiggi greiðslu fyr­ir hvert verk.

„Háskinn við þetta er að þess­ir menn hafa ekki hlotið sér­staka þjálf­un og þeir lúta mjög laus­legri stjórn sem tákn­ar að verk þeirra geta haft ófyr­ir­sjá­an­leg­ar af­leiðing­ar,“ seg­ir Stensø­nes og bæt­ir því við að slík til­felli séu þekkt, meðal ann­ars frá Bretlandi, Þýskalandi og Póllandi.

Seg­ir hann fjölda íkveikja og annarra skemmd­ar­verka í Evr­ópu í fyrra að öll­um lík­ind­um vera að und­ir­lagi Rússa og miði aðgerðirn­ar að því að valda ótta og fæla ríki frá frek­ari stuðningi við Úkraínu­menn.

Misst um 600.000 her­menn

Í skýrsl­um norsku stofn­an­anna þriggja er það gríðar­mikla mann­tjón enn frem­ur tí­undað sem grein­ing­araðilar þeirra telja Rússa hafa haft af stríðsrekstri sín­um í Úkraínu.

„Stríðið hef­ur kostað minnst 115.000 rúss­neska her­menn lífið. Séu særðir her­menn, stríðsfang­ar og þeir sem saknað er tekn­ir inn í mynd­ina hafa Rúss­ar misst meira en 600.000 her­menn í stríðinu,“ seg­ir þar.

„Þetta stríð er Rúss­um óhemju­dýrt, einkum þegar mælt er í mann­leg­um þján­ing­um,“ seg­ir Stensø­nes við NRK. „Þeir hafa misst um það bil 600.000 her­menn, af hverj­um 200.000 eru óvíga­fær­ir til fram­búðar, annaðhvort látn­ir eða svo skaðaðir að þeir munu ekki eiga aft­ur­kvæmt í stríð. Sá kostnaður er gríðar­mik­ill og þá er ekki talað um all­an fjár­muna­lega kostnaðinn,“ seg­ir leyniþjón­ust­u­stjór­inn.

NRK

NRK-II (brott­vís­un sendier­ind­reka 2023)

Netta­visen

Af­ten­posten

Skýrsla PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert