Vill að öllum gíslum verði sleppt fyrir laugardag

Fyrrverandi palestínskur fangi knúsar fjölskyldumeðlim sinn.
Fyrrverandi palestínskur fangi knúsar fjölskyldumeðlim sinn. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að láta verði alla gísla lausa úr haldi á Gasa í síðasta lagi fyrir hádegi á laugardaginn. Ef það gerist ekki þá hótar forsetinn að vopnahléssamningum á milli Ísraels og Hamas-samtakanna verði rift.

Í gær bárust þær fréttir úr herbúðum Hamas-samtakanna að þau ætli að fresta lausn gísla úr haldi sínu um óákveðinn tíma en þau saka Ísraelsmenn um brot á skilmálum vopnhléssamningsins.

Ísraelsmenn neita þessum ásökunum og saka Hamas-samtökin um að brjóta á skilmálunum með yfirlýsingu sinni.

Trump tekur hins vegar fram að það sé á endanum undir Ísrael komið hvort halda eigi vopnahléssamkomulaginu áfram.

Samkvæmt vopnahléssamningi Ísraela og Hamas, sem tók gildi 19. janúar, ber Hamas að sleppa 33 ísraelskum gíslum á fyrstu 42 dögum vopnahlésins. Aftur á móti verða Ísraelar að sleppa um 1.900 föngum úr ísraelskum fangelsum.

Fimmtu fanga- og gíslaskiptin fóru fram nýliðna helgi. Þremur ísraelskum gíslum og 183 palestínskum föngum var þá  sleppt.

Spennan á Gasa hefur magnast eftir að Trump lagði til í síðasta mánuði að yfirtaka Gasasvæðið og fjarlægja meira en tvær milljónir íbúa þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert