Dagana 22. - 26. febrúar verður reynt að bólusetja rúmlega 590.000 börn undir 10 ára aldri á Gasasvæðinu gegn mænusótt en yfirstandandi vopnahlé milli Hamas og Ísraels gefur mannúðarsamtökum dýrmætt tækifæri til þess að aðstoða börn og íbúa á Gasa.
Þetta segir í sameiginlegri tilkynningu UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).
Um er að ræða neyðarbólusetningaátak og segir í tilkynningunni enn fremur að lömunarveiki hafi greinst í sýnum á Gasa á síðasta ári og að mannúðarhlé í haust hafi verið vel nýtt til þess að ná til hundruð þúsunda barna víðs vegar á svæðinu.
Enn sé þó hætta á útbreiðslu þar sem enn séu glufur í hjarðónæmi vegna íbúa sem hafi lítið eða ekkert ónæmi gegn sjúkdómnum.
„Ástandið á Gasa nú, í mannmergð flóttamannabúða, þar sem innviðir vatns og hreinlætisþjónustu séu bágbornir eða í sumum tilfellum vart til staðar skapi kjöraðstæður fyrir útbreiðslu sjúkdóma eins og mænusóttar.
Síðan ráðist var í hina umfangsmiklu bólusetningarherferð í september og október síðastliðnum hefur ekkert tilfelli mænusóttar greinst síðan 10 mánaða barn greindist í ágúst. En mænusóttarveira fannst í umhverfissýnum sem tekin voru í desember og janúar síðastliðnum í Deir al Balah og Khan Younis, sem sýnir fram á að hættan er vissulega til staðar,“ segir í tilkynningunni.
Palestínska heilbrigðisráðuneytið fer fyrir herferðinni með stuðningi frá WHO, UNICEF og UNRWA (Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna).
Á meðal þeirra barna sem stefnt er á að reyna að bólusetja eru þau börn sem ekki náðist að bólusetja í fyrri umferðum og þar með verði hægt að loka þeim ónæmisglufum sem eru til staðar og koma í veg fyrir faraldur.
Þá segir í tilkynningu að mænusóttarbóluefni séu örugg, engin takmörk séu fyrir því hversu oft megi bólusetja börn með þeim og að hver skammtur auki aðeins vörn einstaklinga gegn veirunni.
„Að lokum fagna UNICEF og WHO núverandi vopnahléi og kalla eftir að það verði varanlegt og leiði til langtímafriðar.“