Beita sér enn frekar gegn Úkraínu

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að hætta tímabundið að deila njósnaupplýsingum með úkraínskum stjórnvöldum.

John Ratcliffe, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, staðfestir þetta.

Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað að stöðva tímabundið hernaðaraðstoð við Úkraínu.

„Trump forseti efast raunverulega um hvort að Selenskí forseti sé reiðubúinn að skuldbinda sig friðarviðræðum,“ segir Ratcliffe við Fox News.

Fyrir úkraínska herinn geta njósnaupplýsingar verið jafn mikilvægar og hernaðargögn í stríðinu við Rússa.

Hann segir um tímabundnar aðgerðir að ræða og á hann von á að Bandaríkin haldi áfram þéttu samstarfi við Úkraínu í framtíðinni.

Stirð samskipti

Samskipti Bandaríkjanna og Úkraínu hafa verið stirð eftir spennuþrunginn fund Volodimírs Selenskís Úkraínuforseta og Trumps í Hvíta húsinu á föstudaginn í síðustu viku. Trump og varaforseti hans J.D. Vance sökuðu Selenskí meðal annars um vanþakklæti.

Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, sagði Bandaríkin hafa tekið skref aftur og þau séu nú að „endurskoða allar hliðar sambandsins“ við Úkraínu.

Selenskí hefur reynt að liðka fyrir samskiptin á nýjan leik með því að segjast „sjá eftir“ því sem gerðist á fundinum og að hann vilji bæta úr stöðunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert