Claudia Sheinbaum, forseti Mexíkó, segir að Mexíkó muni finna sér ný viðskiptaríki í stað Bandaríkjanna ef að þörf krefst. Þetta kemur í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti setti 25% toll á allar vörur sem koma til Bandaríkjanna frá Mexíkó.
Bandaríkin og Mexíkó stunda mikil viðskipti sín á milli en áttatíu prósent af öllum útflutningi Mexíkó fer til Bandaríkjanna. Sheinbaum telur tollana brjóta í bágu við fríverslunarsamning sem gerður var í fyrri stjórnartíð Trump en sá samningur rennur undir lok í lok júlí á næsta ári.
Sheinbaum segir að Mexíkó þurfi að grípa til aðgerða í ljósi tollanna en helst vilji hún þó ræða persónulega við Trump og finna ásættanlega lausn á málunum.
Trump segir að tollarnir séu tilkomnir vegna aðgerðaleysis stjórnvalda í Mexíkó vegna umsvifa glæpasamtaka sem hafa flutt fíkniefni á borð við Fentanyl yfir landamærin til Bandaríkjanna. Sheinbaum hefur þó sagst ætla að grípa til harðra aðgerða til þess að koma í veg fyrir að innflutningurinn haldi áfram.