Segir Trump fara með fleipur

José Raúl Mulino forseti Panama.
José Raúl Mulino forseti Panama. AFP/Arnulfo Franco

José Raúl Mulino, forseti Panama, sakaði Donald Trump Bandaríkjaforseta um lygar þegar hann sagði í stefnuræðu sinni á bandaríska þinginu í gær að ríkisstjórn hans væri að „endurheimta“ Panama-skurðinn. 

Vísaði hann þar með í kaup bandaríska fjárfestingarfyrirtækisins BlackRock á hlut í kínversku fyrirtæki sem hefur rekið tvær hafnir sitt hvoru megin við Panama-skurðinn síðustu ár. Keypti BlackRock jafnframt hafnirnar tvær.

Trump hefur lengi talað fyrir því að fá Panamaskurðinn aftur á sitt vald. Hafði hann meðal annars hótað því að beita hervaldi til þess að fá sínu framgengt. 

Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni í gær.
Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni í gær. AFP

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór í heimsókn til Panama í síðasta mánuði þar sem hann átti fund með Mulino. Vildi hann þá meina að Kína hefði áhrif á starfsemi skipaskurðarins, eitthvað sem Mulino þvertók fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert