Formaðurinn sendi Trump tóninn

Mute Egerde segir Grænland ekki til sölu.
Mute Egerde segir Grænland ekki til sölu. Samsett mynd

Múté B. Egede, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, fann sig knúinn til að tjá sig vegna nýjustu yfirlýsingar Donalds Trumps um að Grænland muni með einum eða öðrum hætti komast í bandaríska eigu.

„Við viljum hvorki hafa Bandaríkjamenn né Dani hérna. Við erum grænlensk,“ skrifaði Egede á samfélagsmiðilinn Facebook.

„Bandaríkjamenn og leiðtogar þeirra verða að skilja þetta,“ heldur hann áfram.

„Við erum ekki til sölu og verðum ekki bara tekin. Framtíðin verður ákveðin af okkur á Grænlandi,“ segir Egade.

 

Ekki útilokað beitingu hervalds 

Í fyrri yfirlýsingum hefur Donald Trump neitað að útiloka beitingu hervalds til að ná fram markmiði sínu um að eignast Grænland. Tónninn var þó mildari framan af ræðu hans á Bandaríkjaþingi í fyrradag.

„Við styðjum heilshugar rétt ykkar til þess að ákvarða eigin framtíð, og ef þið veljið, þá er ykkur velkomið að verða hluti af Bandaríkjunum," sagði Trump í ræðu sinni þar sem hann beindi orðum sínum til Grænlendinga.

En sagði í beinu framhaldi að hann hygðist ekki gefast upp. „Á einn eða annan hátt munum við ná því (Grænlandi).“

„Það mun ekki gerast“ 

Lofaði hann Grænlendingum gull og grænum skógum í framhaldinu og sagði þá munu efnast vel ef þeir yrðu hluti af Bandaríkjunum.

Trouls Lund Poulsen, varnarmálaráðherra Danmerkur, gagnrýndi orð Trumps harðlega í gær. „Það mun ekki gerast,“ var svar hans við spurningu fréttamanns DR1 um ummæli Trumps.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert