Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að kannski sé auðveldara að eiga við Rússa en Úkraínumenn í baráttunni um að binda enda á stríðið í Úkraínu.
„Ég á sí erfiðara með að eiga við Úkraínu og þeir hafa ekki spilin í sínum höndum,“ segir Trump. „Það er kannski auðveldara að eiga við Rússland.“
Þetta er meðal þeirra orða sem forsetinn bandaríski lét falla á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington-borg rétt í þessu.
Segist hann treysta Vladimír Pútín Rússlandsforseta. „Ég trúi honum,“ segir Trump, spurður hvort hann telji Pútín vilja semja um frið.
Þrátt fyrir það segir hann að Rússar séu að „sprengja Úkraínu til helvítis“. Hann hafi sett Rússum stólinn fyrir dyrnar í þeim efnum.
Spurður hvers vegna Bandaríkin muni ekki veita Úkraínu loftvarnarkerfi í ljósi ákvörðunar sinnar um að stöðva hernaðaraðstoð til Úkraínu segir Trump að hann viti ekki hvort að Úkraínumenn vilji semja um frið.
„Ef þeir vilja ekki semja, þá erum við farnir,“ segir Trump og bætir við að hann sé að reyna „að stöðva dauðann“.
Varar hann jafnframt við því að ástandið geti þróast í þriðju heimsstyrjöldina ef ekki verði samið um frið.
Spurður hvers vegna hann telji að Evrópulönd hafi ekki fundið upp á eigin friðaráætlun í Úkraínu svarar Trump að „stundum eru spurningar ósvaranlegar“.
Segir hann að „þeir kunna ekki að enda stríðið“ en hann hafi aftur á móti hugmynd um hvernig hann geti bundið enda á það.