Fjöldi látinna hækkar ört í átökunum í Sýrlandi

Sýrlenskir hermenn við Latakia í Suður-Sýrlandi.
Sýrlenskir hermenn við Latakia í Suður-Sýrlandi. AFP

Fjöldi lát­inna fer hækk­andi í átök­um sem hafa geisað í Sýr­landi frá því á fimmtu­dag. Að minnsta kosti 745 al­menn­ir borg­ar­ar af trú­arminni­hluta­hópi ala­víta hafa verið tekn­ir af lífi að sögn mann­rétt­inda­sam­taka.

Átök brut­ust út á fimmtu­dag­inn á milli her­sveita nýrr­ar rík­is­stjórn­ar í Sýr­landi og bys­su­m­anna sem halda trú við Bash­ar al-Assad, fyrr­ver­andi for­seta, sem sjálf­ur er ala­víti.

Assad-stjórn­in féll í des­em­ber þegar hóp­ar með tengsl við íslam­ista gerðu upp­reisn þar í landi. Ein­ræðis­herr­ann flúði land fyr­ir vikið.

Sýr­lenska mann­rétt­inda­vakt­in hef­ur nú sagt að sak­laus­ir borg­ar­ar hafi verið tekn­ir af lífi við heim­ili sín í átök­um sem brut­ust út á fimmtu­dag. Í kjöl­farið hafi sýr­lensk­ir her­menn og stuðnings­menn nýrr­ar rík­is­stjórn­ar rænt heim­ili þeirra látnu.

Mann­rétt­inda­vakt­in grein­ir nú frá því að heild­ar­fjöldi lát­inna sé 1.018, þar með talið eru 125 stuðnings­menn nýrr­ar rík­is­stjórn­ar og 148 stuðnings­menn Assads.

Auk þess seg­ir stofn­un­in að þrír starfs­menn varn­ar­málaráðuneyt­is Sýr­lands hafi verið drepn­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka