Draga báðir í land

Doug Ford og Donald Trump.
Doug Ford og Donald Trump. Samsett mynd/AFP

Doug Ford, fylkisstjóri Ontario-fylkis í Kanada, hefur ákveðið að fresta 25% hækkun á raforkuverði til Bandaríkjanna. Sömuleiðis hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti ákveðið að hætta við tvöföldun á fyrirhuguðum tollum á áli og stáli frá Kanada. 

Munu tollarnir því nema 25% en ekki 50% og taka þeir gildi á miðnætti að staðartíma.

Þetta kemur í kjölfar samtals Ford og Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna frá í dag.

Eru þeir sagðir munu hittast í Washington á fimmtudag til að ræða framtíð fríverslunarsamningsins USMCA á milli Bandaríkjanna, Mexíkó og Kanada.

Virðir ákvörðunina

Trump greindi frá því í dag að hann ætlaði að tvöfalda fyrirhugaða tolla á ál og stál frá Kanada. Því svaraði fylkisstjóri Ontario-fylkis með því að hækka raforkuverð til ríkisins. 

Ford var fyrri til að draga í land en Trump sagðist virða ákvörðun hans. 

Bandaríkin og Kanada eru náin viðskiptaríki en tollastríð hófst á milli þeirra í byrjun marsmánaðar þegar Trump setti á 25% flata tolla á flestar vörur frá Kanada.

Helmingur af öllu innfluttu áli í Bandaríkjunum kemur frá Kanada og 20% af öllu innfluttu stáli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert