Franski þingmaðurinn Claude Malhuret sagði bandaríska stjórnmálamenn ekki geta staðið uppi í hárinu á Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Í ræðu í öldungadeild franska þingsins, sem hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla, fór Malhuret hörðum orðum um Bandaríkjaforsetann og kallaði ráðgjafa hans Elon Musk „fábjána á ketamíni“.
Í öldungadeildinni ræða þingmenn aðallega innanríkismál og er það sjaldan sem ræður þar ná útbreiðslu á samfélagsmiðlum.
Umbúðalaus ræða Malhuret í síðustu viku, þegar Úkraína og öryggismál Evrópu voru til umræðu, vakti þó athygli út fyrir landsteinana þar sem hann líkti Trump m.a. við alræmda rómverska keisarann Neró, og Washington við hirð hans.
Malhuret, sem er eðlisfræðingur og lögfræðingur, hefur setið í öldungadeild franska þingsins frá árinu 2014.
Malhuret sagði Evrópu standa á tímamótum, bandaríski skjöldurinn væri að hverfa á braut og að Úkraína ætti í hættu á að verða yfirgefin á sama tíma og Rússar styrktust.
„Þetta er harmleikur fyrir hinn frjálsa heim en umfram allt er þetta harmleikur Bandaríkjanna,“ sagði Malhuret.
Hann sagði skilaboð Trumps vera þau að bandamenn hans hefðu engan tilgang. Forsetinn væri að leggja tolla á vörur bandamanna, hóta að verja þá ekki og jafnvel taka yfir landsvæði þeirra.
Þá sagði hann Trump vera fyrsta forseta Bandaríkjanna til að gefast upp fyrir óvininum.
„Við erum í stríði við einræðisherra,“ sagði Malhuret og vísaði þar til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. „Nú erum við að berjast gegn óvininum sem nýtur stuðnings svikarans,“ hélt hann áfram og vísaði þar til Trumps.
Í viðtali við AFP-fréttastofuna sagði Malhuret að í ræðunni hefði hann varpað ljósi á bæði reiði og áhyggjur margra Bandaríkjamanna.
„Það hvarflaði aldrei að mér að netverjar myndu þýða ræðuna mína á ensku og að hún myndi ná jafn mikilli útbreiðslu og raun ber vitni, sérstaklega í Bandaríkjunum,“ sagði Malhuret og bætti við að hann væri að veita Bandaríkjamönnum sem upplifðu mikið óöryggi röddu.
Sagði hann bæði demókrata og repúblikana finna fyrir óvissunni.
„Af þeim mörgu, mörgu, mörgu skilaboðum, sem ég hef fengið síðan þá, að dæma, þá tel ég að Bandaríkjamenn upplifi núna að stjórnmálamennirnir þeirra geti ekki staðið uppi í hárinu á Trump.“
Sagði hann repúblikana óttast að þeim verði refsað fyrir að tala gegn forsetanum og að demókratar séu enn að jafna sig eftir ósigurinn í forsetakosningunum. „Flokkurinn er enn að ná sér á strik.“
„Í mörgum af þeim skilaboðum sem ég hef fengið er fólk að spyrja: „Hvers vegna þarf franskan stjórnmálamann til að segja þetta, þegar enginn annar er að gera það?“,“ sagði Malhuret.