Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að kaupa glænýja Tesla bifreið til að sýna Elon Musk, helsta ráðgjafa sínum, stuðning en Musk er forstjóri Tesla.
„Til repúblikana, íhaldsmanna og allra frábærra Bandaríkjamanna, Elon Musk er að hjálpa þjóðinni og er að vinna frábært verk,“ segir Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.
Hann segir að róttækir vinstri brjálæðingar séu að sniðganga Tesla, sem er einn stærsti bílaframleiðandi heims, með ólöglegum hætti til að ráðast á og skaða Elon, og allt sem hann stendur fyrir.
„Ég ætla að kaupa glænýja Teslu á morgun til stuðnings honum. Hvers vegna ætti að refsa honum fyrir að leggja mikla hæfileika sína í að hjálpa til að gera Bandaríkin frábær á nýjan leik,“ skrifar Trump í færslunni í gær.
Frá því Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna á nýjan leik í janúar hefur hann veitt milljarðamæringnum Musk vald til að skera niður útgjöld alríkisstjórnarinnar og leggja niður stofnanir sem yfirmaður svokallaðrar hagkvæmisdeildar, DOGE.
Hlutabréf í Tesla lækkuðu um meira en 15 prósent í gær þar sem óvissa um innflutningstolla og hótanir Trumps hafa valdið óróa á bandarískum fjármálamörkuðum.