Pútín hvetur hermenn sína tl að frelsa Kúrsk-hérað

Vladimír Pútín Rússlandsforseti var staddur í Kúrsk-héraði í dag.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti var staddur í Kúrsk-héraði í dag. AFP

Vladimír Pútín Rússlandsforseti hvetur hermenn sína til dáða í frelsun Kúrsk-héraðs.

Í fyrstu heimsókn sinni til héraðsins síðan Úkraína hóf gagnsókn sína í ágúst hrósaði hann hermönnum sínum fyrir framganginn og hvatti þá enn frekar til dáða og til að frelsa héraðið.

„Ég stóla á að allar okkar aðgerðir muni heppnast og svæðið verði frelsað frá óvininum,“ sagði Pútín í sjónvarpsviðtali.

Hörfa til að koma í veg fyrir mannfall

Nokkrum mínútum eftir viðtalið við Pútín sagði hershöfðingi í úkraínska hernum að Úkraínumenn myndu hörfa til að koma í veg fyrir mannfall.

Sagt er að fleiri en 10 þúsund Norður-kóreskir hermenn berjist við hlið rússneskra í Kúrsk-héraði. 

Pútín sagði að úkraínskir hermenn sem teknir verði höndum munu verða meðhöndlaðir sem hryðjuverkamenn samkvæmt rússneskum lögum. Lögum sem gera ráð fyrir hugsanlegri fangelsun í áratugi.

Rússar hafa nú þegar réttað yfir nokkrum úkraínskum föngum með þeim hætti.

Rússar hafa náð til baka um 1.100 ferkílómetrum lands í Kúrsk-héraði eða meiri hluta alls lands sem Úkraínumenn sölsuðu undir sig í gagnsókninni í ágúst.

Bandaríkjamenn hafa lagt að Rússum að samþykkja 30 daga vopnahlé. Úkraínumenn höfðu vonast til að geta notað stöðu sína í Kúrsk-héraði sem spil í friðarviðræðum við Moskvu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert