„Það þarf tvo í tangó“

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútin.
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútin. AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann muni ræða fljótlega við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, sem muni vonandi fallast á að koma 30 daga tafarlausu vopnahléi til bráðabirgða sem Úkraínumenn samþykktu eftir tillögu Bandaríkjanna á fundi þeirra í Sádi-Arabíu í gær.

„Það þarf tvo í tangó, eins og sagt er,“ sagði Trump við fréttamenn en hann vonast til að samkomulagið um vopnahlé verði samþykkt á næstu dögum.

Við eigum stóran fund með Rússum á morgun og vonandi verða góðar samræður í kjölfarið, bætti Trump við.

Rússar hafa ekki svarað opinberlega vopnahléstillögunni en Maria Zakharova, talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins, sagði í morgun að afstaða Rússa til vopnahléstillögunnar verði ákveðin heima fyrir en ekki erlendis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert