Fjármálaráðherra Bandaríkjanna andar rólega

Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur trú á stefnu Trumps.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur trú á stefnu Trumps. AFP

Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, gerir lítið úr þeim óstöðugleika sem hefur verið á fjármálamörkuðum undanfarið. Hann kveðst einblína á raunhagkerfið á sama tíma og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt um víðtæka tolla sem hafa vakið óróa meðal fjárfesta.

Háir tollar Trumps gagnvart Kanada og Mexíkó tóku gildi í byrjun mars og urðu til þess að verð á hlutabréfum tók að falla.

Í byrjun þessarar viku voru rauðar tölur ráðandi á mörkuðum vegna ótta við að stefna forsetans gæti leitt til samdráttar í Bandaríkjunum.

Ekki áhyggjufullur

„Ég sagði ekki að við værum ekki áhyggjufull,“ sagði Bessent við CNBC þegar hann var spurður um stöðuna.

„Ég hef ekki áhyggjur af smávægilegum óstöðugleika yfir þriggja vikna tímabil,“ sagði hann og lagði áherslu á að hann einblíndi á langtímaáhrifin.

Þrjár helstu hlutabréfavísitölur Bandaríkjanna hafa þurrkað út allan hagnað frá því forsetakosningarnar fóru fram í nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert