Huawei tengt spillingarrannsókn

Kínverski tæknirisinn Huawei tengist spillingarmáli sem yfirvöld í Belgíu hafa …
Kínverski tæknirisinn Huawei tengist spillingarmáli sem yfirvöld í Belgíu hafa nú til rannsóknar. AFP/Josep Lago

Lögregla í Belgíu réðst í morgun til inngöngu í húsnæði á nokkrum stöðum í landinu og framkvæmdi þar húsleit vegna gruns hennar um spillingarmál undir fölsku flaggi hagsmunagæslustarfsemi í viðskiptalífinu.

Þetta staðfesta saksóknarar þarlendir við fréttastofuna AFP og greinir belgíska dagblaðið Le Soir frá því að rannsóknin tengist kínverska tæknirisanum Huawei og umsvifum hans í Belgíu síðan 2021.

„Nokkrir hafa verið handteknir og færðir til yfirheyrslu í tengslum við meinta aðkomu þeirra að spillingarstarfsemi sem nú stendur yfir,“ hefur blaðið eftir embætti saksóknara úr fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert