Múte B. Egede, fráfarandi formaður landsstjórnar Grænlands, segir að hann muni boða til fundar með flokksleiðtogum til að hafna hugmyndum Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að taka yfir eyjuna. Egede segir að nú sé „nóg komið“.
„Að þessu sinni þurfum við að herða afstöðu okkar gagnvart Trump. Fólk getur ekki haldið áfram að vanvirða okkur,“ skrifaði Egede á Facebook, eftir að Trump ítrekaði fyrr í dag löngun sína til að innlima Grænland.
Egede heldur áfram um stjórnartaumana á meðan unnið er að myndun nýrrar ríkisstjórnar í kjölfar ósigurs flokks hans í kosningum á þriðjudag.
„Bandaríkjaforseti hefur enn einu sinni viðrað hugmyndina um að innlima okkur. Ég get alls ekki sætt mig við það,“ skrifaði hann.
„Ég virði niðurstöðu kosninganna, en ég tel að ég hafi skyldu sem starfandi formaður. Ég hef því beðið stjórnsýsluna um að boða flokksleiðtoga til fundar eins fljótt og auðið er.“
„Ég held að það muni gerast,“ sagði Trump spurður út í framtíð Grælands þegar hann ræddi við blaðamenn í Hvíta húsinu í dag eftir sameiginlegan fund með Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO.
Rutte var einnig spurður út í málið en hann neitaði að tjá sig.