Samstiga gegn Trump

Múte B. Egede, fráfarandi formaður landsstjórnarinnar, segir að nú sé …
Múte B. Egede, fráfarandi formaður landsstjórnarinnar, segir að nú sé nóg komið. AFP/Mads Claus Rasmussen

Leiðtogar allra stjórnmálaflokka Grænlands fordæma fyrirætlanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að taka yfir landið.

„Við – formenn allra flokka – getum ekki sætt okkur við endurteknar yfirlýsingar um innlimun og yfirráð yfir Grænlandi,“ segja leiðtogar fimm þingflokka Grænlands í sameiginlegri yfirlýsingu sem birt var á Facebook í dag.

Trump lýsti síðast áhuga sínum á að innlima Grænland í gær. 

Óásættanlegt

„Við sem flokksformenn teljum þessa hegðun óásættanlega gagnvart vinum okkar og bandamönnum sem eru saman í varnarbandalagi,“ segir í yfirlýsingunni sem gefin er út í kjölfar neyðarfundar.

Flokksformennirnir bættu við að þeir „leggi áherslu á að Grænland haldi áfram því starfi fyrir Grænland sem þegar er í gangi í gegnum diplómatíska farvegi í samræmi við alþjóðalög og reglur. Við stöndum öll að baki þessum aðgerðum og höfnum eindregið tilraunum til að skapa sundrungu,“ segir í tilkynningunni,

Þegar blaðamenn í Hvíta húsinu spurðu Trump í gær um yfirtöku á eyjunni, sagði hann: „Ég held að það muni gerast.“

Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, sem hafði þá nýverið fundað með Trump, neitaði að tjá sig um málið.

Nóg komið að mati Egede

Muté B. Egede, frá­far­andi formaður lands­stjórn­ar Græn­lands, brást við með því að segja að nú væri nóg komið. Grænlendingar þurfi að ítreka neitunina. Hann geti ekki haldið áfram að vanvirða þjóðina. 

Egede er enn leiðtogi Grænlands á meðan beðið er eftir að ný landsstjórn verði mynduð. Flokkur hans beið afhroð í þingkosningunum á þriðjudag. 

„Bandaríkjaforseti hefur enn einu sinni viðrað hugmyndina um að innlima okkur. Ég get alls ekki sætt mig við það,“ skrifaði hann á Facebook og bætti við að hann myndi kalla saman leiðtoga flokka landsins.

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hafnaði einnig nýjustu ummælum Trumps í dag og sagði að Grænland gæti ekki verið tekið yfir af öðru landi.

„Ef þú skoðar NATO-sáttmálann, sáttmála Sameinuðu þjóðanna eða alþjóðalög, þá er ekki hægt að innlima Grænland,“ sagði Løkke við blaðamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert