Yfirvöld í Kína hafa kallað eftir því að komið verði á samtali til að draga úr spennu á Rauðahafinu. Kemur ákall þeirra eftir að Bandaríkjamenn gerðu um helgina umfangsmiklar árásir á uppreisnarmenn Húta í Sana, höfuðborg Jemen. Gerðu Hútar í kjölfarið árás á bandarískt flugmóðurskip.
Donald Trump Bandaríkjaforseti fyrirskipaði árásirnar, en þær voru gerðar í von um að opna aftur siglingarleiðir um Rauðahaf. Hafa Hútar, sem studdir eru af stjórnvöldum í Íran, hindrað siglingar með árásum á flutningaskip síðustu mánuði.
Hefur árásum uppreisnarmannanna á ísraelsk skip fjölgað eftir að Ísraelsmenn hindruðu aftur flutning neyðargagna til Gasa, en Hútar hafa sagt aðgerðirnar hluta af samstöðu með Palestínumönnum.
Að minnsta kosti 53 eru látnir í Sana eftir árásir Bandaríkjamanna og 98 særðir samkvæmt upplýsingum heilbrigðisráðuneytis Jemens. Segja yfirvöld þar að flest fórnarlambanna séu konur og börn, en Bandaríkjamenn segjast hafa fellt nokkra háttsetta leiðtoga Húta.
„Kína er mótfallið aðgerðum sem kunna að auka spennuna á Rauðahafi,“ sagði Mao Ning, talsmaður utanríkisráðuneytis Kína, á fundi í morgun. Bætti hann því við að staðan á svæðinu væri flókin og að best væri að leysa úr henni með samtali og samningaviðræðum.