Minnast þeirra sem féllu þegar þeir vörðust innrás Rússa

Myndir af föllnum úkraínskum hermönnum.
Myndir af föllnum úkraínskum hermönnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Við dómkirkju heilags Mikaels í Kænugarði stendur veggur alsettur þúsundum mynda af úkraínskum hermönnum, sem fallið hafa fyrir hendi Rússa í innrásarstríði þeirra.

Myndirnar töldu þegar nærri fimm þúsund áður en rússneski herinn hóf innrás sína af fullum krafti fyrir rúmum þremur árum, enda réðust Rússar fyrst inn í landið árið 2014.

Fleiri tugir þúsunda úkraínskra hermanna hafa síðan fallið, að því er talið er, og langt er síðan ekkert tóm var lengur eftir fyrir nýjar myndir.

Frekari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert