Pútín „ekki slæmur náungi“

Witkoff sagði Pútín hafa beðið fyrir vini sínum Trump eftir …
Witkoff sagði Pútín hafa beðið fyrir vini sínum Trump eftir að hann var skotinn. AFP

Steve Witkoff, erindreki Hvíta hússins sem fer fyr­ir samn­inga­nefnd Banda­ríkja­manna, hefur hælt Pútín háttsvert og sagt hann vera alls trausts verðan. Þá sagði hann Pútín hafa sagst beðið fyrir „vini“ sínum Donald Trump Bandaríkjaforseta eftir að hann var skotinn. 

Witkoff fundaði með Pútín í nokkrar klukkustundir í liðinni viku í Moskvu. Meðal annars ræddu þeir hvernig ætti að binda enda á stríðið í Úkraínu. 

Witkoff lýsti fundinum sem uppbyggilegum og „lausnamiðuðum“.

Steve Witkoff erindreki fundaði með Pútín í vikunni.
Steve Witkoff erindreki fundaði með Pútín í vikunni. AFP/Mandel Ngan

Í hlaðvarpsviðtali við Tucker Carlson sagði Witkoff Pútín „ekki vera slæman náunga“ og að rússneski forsetinn væri „frábær“ leiðtogi sem væri að leita leiða til að enda stríðið. 

„Mér líkaði vel við hann. Ég taldi hann hafa verið hreinskilinn við mig,“ sagði erindrekinn. 

„Ég lít ekki á Pútín sem slæman náunga. Þetta er flókin staða, þetta stríð, og allt sem leiddi til þess.“

Lét útbúa mynd af Trump

Pútín á að hafa sagt Witkoff frá því að eftir skotárásina á kosningafund Trump í Pennsylvaníuríki í júlí hafi Pútín hitt prest í kirkju og beðið fyrir Trump. 

„Ekki af því að hann gæti orðið forseti Bandaríkjanna, heldur af því þeir eru vinir og hann var að biðja fyrir vini sínum.“

Witkoff sagði í viðtalinu að Pútín hefði fengið rússneskan listamann til þess að útbúa mynd af Trump sem hann bað Witkoff að færa Trump. 

„Það var svo falleg stund.“

Selenskí í erfiðari stöðu 

Witkoff sagði Volodimír Selenskí Úkraínu­for­seta standa frammi fyrir erfiðum valkostum og að hann ætti að viðurkenna að það væri kominn tími til að „gera samning“ við Moskvu. 

Selenskí „er í mjög erfiðri stöðu, en hann er að berjast gegn kjarnorkuveldi.“

Tucker Carlson er umdeildur fyrrverandi fjölmiðlamaður á Fox News. Hann tók meðal annars viðtal við Pútín í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert