Þrír hafa verið handteknir í tengslum við skotárás sem var gerð í almenningsgarði í borginni Las Cruces í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum á föstudagskvöld.
Hinn tvítugi Tomas Rivas og 17 ára drengur voru handteknir í gær. Annar 17 ára drengur var síðan handtekinn í morgun.
CNN greinir frá því að mennirnir þrír hafi verið ákærðir fyrir morð.
Hinn 16 ára Andrew Madrid, 18 ára Jason Gomez og 19 ára Dominick Estrada létu lífið í árásinni.
Níu karlmenn og sex konur á aldrinum 16 til 36 ára særðust að sögn lögreglu. Málið er til rannsóknar og er almenningsgarðurinn lokaður.
Þetta er 53. fjöldaskotárás þessa árs í Bandaríkjunum.