„Fordæmalaus“ heimsókn

Heimsóknin er í óþökk bæði danskra og grænlenskra stjórnmálamanna.
Heimsóknin er í óþökk bæði danskra og grænlenskra stjórnmálamanna. Samsett mynd/AFP

Yfirvofandi heimsókn Vance-hjónanna og bandarískrar sendinefndar til Grænlands hefur vakið hörð viðbrögð í Danmörku. 

Greint var frá því fyrr í vikunni að Usha Vance, eiginkona varaforseta Bandaríkjanna J.D. Vance, væri á leið í heimsókn til Grænlands ásamt sendinefnd Bandaríkjanna og syni sínum.

Fyrr í kvöld greindi J.D. Vance frá því að hann hefði ákveðið að slást með í hópinn til að skoða öryggisaðstæður í landinu. 

Sakar bandarísk yfirvöld um afskiptasemi

Rétt áður en greint var frá því að Vance hefði ákveðið að fara með í heimsóknina var Mette Frederikssen, forsætisráðherra Danmerkur, í viðtali við danska ríkisútvarpið þar sem hún sagði að ekki væri hægt að halda því fram að um einkaferð væri að ræða.

Hún sagði bandarísk stjórnvöld vera að setja óásættanlegan þrýsting á Grænland og Danmörku.

Heimsóknin hefur verið gagnrýnd harðlega af Grænlendingum en Múte Edege, fráfarandi formaður heimastjórnar Grænlands, sakar bandarísk yfirvöld um afskiptasemi af grænlenskum stjórnmálum. 

Bandaríkin náinn bandamaður

Frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti komst aftur til valda í Hvíta húsinu í janúar hefur hann ítrekað sagt að hann vilji að Bandaríkin taki yfir Grænland og hefur jafnvel ekki útilokað að beita valdi til að ná því markmiði.

„En við viljum mjög gjarnan vinna með Bandaríkjamönnum. Þeir eru náinn bandamaður. En það verða að vera leikreglur þar sem borin er virðing fyrir fullveldi ríkja og landamærum,“ sagði forsætisráðherrann í viðtali hjá danska ríkisútvarpinu.

Diplómatísk stríðsyfirlýsing

Enn hafa grænlenskir stjórnmálamenn ekki brugðist við komu J.D. Vance en um þessar mundir er verið að mynda nýja heimastjórn í landinu. 

Fréttaritari danska ríkisútvarpsins segir að um diplómatíska stríðsyfirlýsingu sé að ræða: 

„Þetta er gríðarleg harka af hálfu Bandaríkjanna. Þeir vissu vel að þessi sendinefnd væri ekki velkomin á Grænlandi og nú senda þeir varaforsetann,“ sagði Philip Khokar, fréttaritari DR í Bandaríkjunum. 

„Það er algjörlega fordæmalaust að varaforseti komi í einkaheimsókn til annars lands þegar hitt landið, og í þessu tilfelli tvö lönd, hafa beðið sendinefndina um að halda sig fjarri,“ segir hann jafnframt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert