Háir tollar á lönd sem kaupa olíu frá Venesúela

Donald Trump Bandaríkjaforseti.
Donald Trump Bandaríkjaforseti. AFP

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær háa tolla á innflutning frá löndum sem kaupa olíu og gas frá Venesúela, refsiaðgerð sem gæti bitnað á Kína og Indlandi, meðal annars.

Frá því Trump sneri aftur í Hvíta húsið hefur hann lagt álögur á mörg viðskiptalönd Bandaríkjanna og þar má nefna 25% toll á ál og stál gagnvart Kanada og Mexíkó og hann hefur hótað 200% tolli á vín, kampavín og aðrar áfengar vörur, frá Frakklandi og öðrum löndum í Evrópusambandinu.

Nýjustu 25 prósenta tollarnir sem miða að beinum og óbeinum kaupendum á olíu frá Venesúela geta tekið gildi 2. apríl, samkvæmt tilskipun sem Trump undirritaði í gær en utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samráði við aðrar ríkisstofnanir, hefur heimild til að ákveða hvort nýja gjaldið verði lagt á.

„Við skorum á Bandaríkin að hætta afskiptum af innanríkismálum Venesúela og afnema hinar ólöglegu einhliða refsiaðgerðir,“ sagði Guo Jiakun, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, á reglulegum blaðamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert