Waltz „tekur fulla ábyrgð“ á neyðarlegu mistökunum

Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna.
Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna. AFP

Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, segist bera fulla ábyrgð á mistökunum sem urðu þegar ritstjóra Atlantic var fyrir slysni bætt í hópspjall á smáforritinu Signal þar sem helstu embættismenn Bandaríkjanna ræddu fyrirhugaða árás á Jemen.

Waltz segir mistökin neyðarleg og heitir því að komast til botns í málinu.

Öryggisbresturinn hefur vakið mikla hneykslan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur reynt að gera lítið úr málinu en stjórnarandstaðan segir um meiriháttar þjóðaröryggisbrest að ræða. Hefur gagnrýnin m.a. beinst að því að þjóðaröryggismál hafi verið til umræðu á Signal, en ekki rædd í persónu eða öðrum tryggari vettvangi.

Taldi hugsanlegt að svikahrappar væru að verki

Í spjallhópnum voru auk annarra Pete Hegseth, varnarmálaráðherra landsins, og J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna.

Jeffrey Goldberg, ritstjóri Atlantic, var í spjallhópnum í nokkra daga án þess að nokkur gæfi því gaum. Hann átti sjálfur erfitt með að trúa því að hann væri að verða vitni að samræðum æðstu embættismanna landsins á Signal – án þess að þeir vissu. 

Það var ekki fyrr en Hegseth greindi með ítarlegum hætti frá skipulagningu árásarinnar að Goldberg taldi fyrir víst að hópurinn væri raunverulegur, og ekki einhverjir svikahrappar að reyna að leiða blaðamann í gildru.

Þekkir Goldberg ekki persónulega

„Ég tek fulla ábyrgð. Ég stofnaði hópinn, mitt starf felur í sér að sjá til þess að allt sé skipulagt,“ sagði Waltz í sínu fyrsta viðtali um málið sem hann veitti Fox News.

Að sögn Goldberg var það Waltz sem sendi honum beiðni á Signal um að ganga í spjallhópinn nokkrum dögum fyrir árásina.

Eftir að árásin var yfirstaðin ákvað Goldberg að yfirgefa spjallhópinn. Í kjölfarið sendi Atlantic fyrirspurnir á Hvíta húsið til að fá staðfestingu á því að spjallhópurinn væri raunverulegur vettvangur þessara embættismanna.

Í viðtalinu við Fox News sagðist Waltz ekki þekkja Goldberg persónulega.

Hann sagði öryggisbrestinn „vandræðalegan“ og hét hann því að komast til botns í því hvað hefði gerst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert