Vladimír Pútín Rússlandsforseti er sagður hafa gefið það í skyn að Donald Trump Bandaríkjaforseti ásælist jafnvel Ísland líkt og hann ásælist Grænland í ræðu sem Pútín hélt á Norðurslóðaráðstefnu í Murmansk.
Í ræðunni er Pútín sagður hafa varið mestum tíma í að fara yfir áhuga Trump á að yfirtaka Grænland en Ísland ber einnig á góma.
Þetta kemur fram í frétt Daily Mail um málið. Segir þar að Pútín hafi orð á því að við fyrstu sýn megi ætla að áhugi Trumps á Grænlandi sé nýr af nálinni, en segir hann að Bandaríkjamenn hafi haft áhuga á eyjunni allt frá 1860 og eigi málið sér því ríkar sögulegar rætur. Nefnir Pútín einnig Ísland á nafn og segir að Bandaríkjamenn hafi á 19. öld haft áhuga á því að innlima Ísland líkt og Grænland í heimsveldið. Þau áform hafi hins vegar ekki hlotið náð hjá þinginu á þeim tíma.
Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og skríbent um utanríkismál vekur athygli á málinu á vefsvæði sínu bjorn.is.
„Hann vék að áformum Trumps gagnvart Grænlandi. Pútín nefndi Ísland til sögunnar, Trump kynni einnig að ásælast það,“ segir Björn á vefsvæði sínu.