Skjálfti upp á 7,7 reið yfir Mjan­mar

Ava-brúin í borginni Mandalay í Mjan­mar hrundi í skjálftanum.
Ava-brúin í borginni Mandalay í Mjan­mar hrundi í skjálftanum. Ljósmynd/X

Öflugur jarðskjálfti, sem mældist 7,7 að stærð, reið yfir miðhluta Mjan­mar í dag að sögn jarðfræðistofnunnar Bandaríkjanna.

Skjálftinn sem reið yfir klukkan 12.50 að staðartíma varð 16 kílómetra norðvestur af borginni Sagaing á tíu kílómetra dýpi.

Skjálftinn fannst í norður- og miðhluta suður Taílands og í höfuðborginni, Bangkok. Hlupu íbúar út á götur þegar byggingar nötruðu. Hann fannst sömuleiðis í Yunnan-héraði í suðvesturhluta Kína en að sögn jarðskjálftastofnunarinnar í Peking mældist skjálftinn 7,9 að stærð.

Jarðskjálftar eru tiltölulega algengir í Mjanmar, þar sem sex sterkir skjálftar af stærðinni 7,0 eða meira urðu á árunum 1930 til 1956 nálægt Sagaing-misgenginu, sem liggur norður til suðurs í gegnum miðju landsins.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert