Íslendingur í Bangkok: „Við fengum enga viðvörun“

Samsett mynd/Aðsend

Þórður Aðalsteinsson býr á 30. hæð í fjölbýlishúsi í Bangkok. Hann var heima með eiginkonu sinni þegar jarðskjálfti skall á Bangkok í gær, um 40 mínútum eftir að jarðskjálftinn varð í Mjanmar.

„Það er til umræðu núna af hverju við fengum enga viðvörun, það voru alveg um 40 mínútur frá því skjálftinn varð í Mjanmar, ef við hefðum fengið til dæmis sms hefðum við getað yfirgefið bygginguna fyrr,“ segir Þórður í samtali við mbl.is.

Aðspurður segir Þórður að hann og eiginkona hans hafi áttað sig á því um leið að jarðskjálfti væri að eiga sér stað.

„Við búum á 30. hæð, þegar þú ert svona hátt uppi hrististu meira. Húsgögnin, veggirnir og allt fór að hristast og við áttum erfitt með að komast út úr íbúðinni í átt að neyðarútganginum. Við duttum og fórum skríðandi hluta af leiðinni niður.“

Hlífðu höfði með höndunum

Þegar hjónin reyndu að komast niður neyðarútgangs stigann mættu þau öðrum íbúa byggingarinnar, konu sem leit út fyrir að vera stjörf af hræðslu. Ang, eiginkona Þórðar, tók ekki annað í mál en að aðstoða konuna niður og að sögn Þórðar rankaði hún við sér eftir nokkrar hæðir og gat þá haldið áfram sjálf.

Að lokum komust þau út á götu þar sem við tók mikil mannmergð.

„Þetta var eins og 100.000 manns, þá komumst við að því að byggingar um alla Bangkok höfðu verið rýmdar,“ segir Þórður.

„Þegar við komum út í mannmergðina tókum við um leið eftir því að klæðning og steypa utan af byggingum var að skella á götuna og gangstéttina, maður hlífði höfði bara með höndunum og reyndi að komast út á opna götu.“

Klæðning og steypa utan af byggingum skall á gangstéttinni þegar …
Klæðning og steypa utan af byggingum skall á gangstéttinni þegar Þórður og Ang komu út fyrir heimili sitt, þau hlífðu höfði og reyndu að komast út á opna götu. Ljósmynd/Þórður Aðalsteinsson

Með eldri byggingum á svæðinu

Aðspurður segir Þórður lítilsháttar skemmdir hafa orðið á íbúð þeirra hjóna á 30. hæð, allt sé hægt að laga og engin hætta stafi af nokkrum skemmdum. Segir hann matsaðila hafa komið í dag, farið vel yfir aðstæður og tekið undir þetta álit.

Í þessu samhengi hefur hann orð á því að byggingin sé með eldri byggingum á svæðinu. Það hafi í þessu tilfelli verið lífsins lukka en nýrri byggingarnar í nágrenninu komu að hans sögn töluvert verr út úr jarðskjálftanum.

„Þetta var eins og 100.000 manns, þá komumst við að …
„Þetta var eins og 100.000 manns, þá komumst við að því að byggingar um alla Bangkok höfðu verið rýmdar,“ segir Þórður. Ljósmynd/Þórður Aðalsteinsson

Vegna þessa voru þau meðal þeirra fyrstu sem fengu að fara inn aftur heima hjá sér, íbúar annarra bygginga urðu að bíða lengur sökum mikilla öryggsiskoðana. Tryggja þurfti öryggi vegna eftirkasta og byggingareftirlitsmenn urðu að meta allar byggingar í hólf og gólf, sem tók lengri tíma í þeim sem verr fóru.

Þau hjónin biðu þó alls í um sex klukkustundir eftir að komast inn til sín aftur. 

„Ég var berfættur í stuttbuxum, bara með símann með mér. Maður fattar ekki að grípa neitt með sér í svona aðstæðum, maður reynir bara að koma sér og sínum út,“ segir Þórður og þakkar fyrir að Ang hafi náð að grípa veskið sitt með sér, það hafi bjargað þeim í 35°C hitanum að geta keypt sér vatn og kaffi.

Hjónin biðu í um sex klukkustundir eftir að komast inn …
Hjónin biðu í um sex klukkustundir eftir að komast inn til sín aftur. Tryggja þurfti öryggi vegna eftirkasta og byggingareftirlitsmenn urðu að meta allar byggingar í hólf og gólf. Ljósmynd/Þórður Aðalsteinsson

„Skildi ekki afhverju stigagangurinn hrundi ekki“

„Það voru ákveðin viðbrigði að ganga upp og niður 30 hæðir, en lyftan verður lokuð í tvo daga í kjölfar skjálftans,“ segir Þórður.

Aðspurður segir hann þau hjónin nokkuð hrærð en þó glöð og þakklát að ekki fór verr. Hugur þeirra sé hjá þeim sem ekki voru eins heppnir.

„Það sem kemur mikið upp í hugann eru þessar mínútur í neyðarútgangs stiganum,“ segir Þórður.

„Á þessari stundu vissi maður ekki hvernig þetta myndi enda, ég man að ég skildi ekki af hverju stigagangurinn hrundi ekki, hann var að hoppa tvo metra frá hægri til vinstri.

Konan sem við hjálpuðum niður var í rauninni að hegða sér eins og við vorum öll að hugsa, en við kusum að halda áfram.“

Þórður Aðalsteinsson býr á 30. hæð í fjölbýlishúsi í Bangkok. …
Þórður Aðalsteinsson býr á 30. hæð í fjölbýlishúsi í Bangkok. Hann var heima með eiginkonu sinni þegar jarðskjálfti skall á Bangkok í gær, um 40 mínútum eftir að jarðskjálftinn varð í Mjanmar. Ljósmynd/Þórður Aðalsteinsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka